Endurvinnslan hf. var stofnuð árið 1989, skv. lögum nr. 52/1989. Ástæða stofnunar félagsins var náttúru- og umhverfisvernd þó vonir stæðu til að hægt yrði að endurvinna umbúðirnar sem smám saman varð að veruleika. Endurvinnslan sér um móttöku, ásamt umboðsmönnum sínum, allra einnota drykkjarvöruumbúðum hérlendis, greiðir út skilagjald þeirra, undirbýr þær til útflutnings og selur til endurvinnslu. 58 starfstöðvar starfa fyrir félagið um allt land.
Ísland var fyrst í heiminum til að koma á skilagjaldskerfi á landsvísu fyrir allar einnota drykkjarvöruumbúðir. Frá því fyrirtækið hóf starfsemi hefur árangur söfnunar verið með því besta sem gerist og hefur verið að nálgast 90% skil á ársgrundvelli.
Framlag Endurvinnslunnar til umhverfisverndar er verulegt því vegna skilagjaldsins eru einnota drykkjarumbúðir ekki lengur rusl sem liggur á víðavangi heldur endurvinnanleg verðmæti sem margir hafa fjárhagslegan hag af. Allir geta lagt sitt af mörkum til að halda landinu hreinu, auka nýtingu auðlinda jarðar og bæta viðhorfið til verðmæta, jafnframt því að skapa gjaldeyristekjur.
Endurvinnslan selur úr landi um 750 tonn af áli á ári og 1.800 tonn af plasti. Glerið notar Sorpa bs. til landfyllingar og við undirbyggingu vega ásamt fleiru en í samstarfi við Hlaðbæ Colas er verið að gera tilraunir með notkun glermulnings í malbik eins og gert er annars staðar í heiminum. Tilraunirnar lofa góðu og verða vonandi raunhæfur kostur á næstu árum.
Frá stofnun Endurvinnslunnar hefur fyrirtækið lagt metnað í að styðja við góð málefni. Fjölmargir aðilar treysta á tekjur af umbúðasöfnun í starfsemi sinni eins og t.d. íþróttafélög, björgunarsveitir, skátahreyfingin ofl.
Endurvinnslan leitast einnig við að hafa atvinnuskapandi áhrif fyrir verndaða vinnustaði og er nú í samstarfi við Dósasel í Keflavík, Fjöliðjuna á Akranesi og í Borganesi og Plastiðjuna Bjarg á Akureyri.
Með umbúðasöfnun hefur tekist að forða landinu frá því að umbúðir liggja á víðavangi eða fylli ruslahauga þannig að umbúðasöfnun er mikið átak í náttúruvernd. Endurvinnsla sparar einnig orku sem annars færi í að frumvinna efni á nýjan leik.
Í afgreiðslu Endurvinnslunnar hf. að Knarrarvogi 4 og Dalvegi 28 er hægt að gefa það sem fæst við söfnun til góðgerðarmála. Árlega nemur slík söfnun hundruðum þúsunda. Þessi félög eru;
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
Fjölskylduhjálp Íslands
Rauði kross Íslands
Hekluskógar