Endurvinnslan hefur umhverfisvernd að leiðarljósi
Endurvinnslan hf. var stofnuð árið 1989, skv. lögum nr. 52/1989. Ástæða stofnunar félagsins var náttúru- og umhverfisvernd þó vonir stæðu til að hægt yrði að endurvinna umbúðirnar sem smám saman varð að veruleika. Endurvinnslan sér um móttöku, ásamt umboðsmönnum sínum, allra einnota drykkjarvöruumbúðum hérlendis, greiðir út skilagjald þeirra, undirbýr þær til útflutnings og selur til endurvinnslu. 58 starfstöðvar starfa fyrir félagið um allt land.
Ísland var fyrst í heiminum til að koma á skilagjaldskerfi á landsvísu fyrir allar einnota drykkjarvöruumbúðir. Frá því fyrirtækið hóf starfsemi hefur árangur söfnunar verið með því besta sem gerist og hefur verið að nálgast 90% skil á ársgrundvelli.
Framlag Endurvinnslunnar til umhverfisverndar er verulegt því vegna skilagjaldsins eru einnota drykkjarumbúðir ekki lengur rusl sem liggur á víðavangi heldur endurvinnanleg verðmæti sem margir hafa fjárhagslegan hag af. Allir geta lagt sitt af mörkum til að halda landinu hreinu, auka nýtingu auðlinda jarðar og bæta viðhorfið til verðmæta, jafnframt því að skapa gjaldeyristekjur.
Endurvinnslan selur úr landi um 700 tonn af áli á ári og 1.800 tonn af plasti. Glerið notar Sorpa bs. til landfyllingar og við undirbyggingu vega ásamt fleiru en í samstarfi við Hlaðbæ Colas er verið að gera tilraunir með notkun glermulnings í malbik eins og gert er annars staðar í heiminum. Tilraunirnar lofa góðu og verða vonandi raunhæfur kostur á næstu árum.

