Beint á leiðarkerfi vefsins
Beint á undirleiðarkerfi vefsins

Talningavélar

Endurvinnslan hf. hóf notkun talningavéla árið 2008 og eru þær fyrstu sinnar tegunda í heiminum. Vélarnar flokka og telja drykkjarumbúðir eftir strikamerkjum og segja strikamerkin til um hvort viðkomandi umbúð sé úr áli, plasti eða gleri. Til þess að vélarnar nái að lesa strikamerkin þurfa umbúðirnar að vera heilar.  Vélarnar eru undir ströngu gæðaeftirliti.

Við hvetjum þig til þess að koma og nýta þér þessa tækni og spara tímann sem fer í að telja og flokka drykkjarumbúðir. Afgreiðsla í gegnum vélar er mun hraðvirkari en almenn afgreiðsla.
HEILAR UMBÚÐIR : Óþarfi að flokka og telja.
KRUMPAÐAR UMBÚÐIR : Flokka í ál, plast og gler og telja umbúðirnar.

Talningavélar eru í Endurvinnslunni Knarrarvogi 4, Endurvinnslunni og  í Dósaseli Keflavik. Vélarnar eru framtíðin og verða settar upp á stærstu móttökustöðvum okkar á næstu árum.