Móttökustöðvar Talningavélar Fróðleikur Um okkur
Lógó - Forsíða

Upplýsingar fyrir framleiðendur

Endurvinnslan hf. rekur sig sem án hagnaðar („non profit“ ) fyrirtæki. Markmið fyrirtækisins er að safna og endurvinna umbúðir á sem hagkvæmastan hátt til að lágmarka kostnað við endurvinnsluna. Tekjur fyrirtækisins eru vegna útflutnings, hluts í skilagjaldi og umsýsluþóknun.

Á framleiðendur og innflytjendur eru sett tvenn gjöld, skilagjald og umsýsluþóknun.

Skilagjald

Samkvæmt lögum 52/1989 eru sett ákvæði um innheimtu skilagjalds. Innheimtu er skipt í tvennt eftir því hvort um er að ræða innflytjendur eða innlendir framleiðendur. Nánar segir í lögunum:

-          Á innfluttar drykkjarvörur í einnota umbúðum úr stáli, áli, gleri og plastefni skal leggja skilagjald sem innheimt skal við tollafgreiðslu

-          Sama gjald skal lagt á drykkjarvörur sem framleiddar eru eða átappaðar hér á landi og seldar eru í sams konar umbúðum og að framan greinir.

Skilagjald er sett á sem hvati til að fá neytendur til að skila umbúðum í stað þess að henda þeim út í náttúruna og er því hugsað til að vernda náttúru landsins. Skilagjaldskerfi hefur reynst besta leiðin til að ná fram hámarksskilum.

Tollstjóraembættið sér um innheimtu vegna innflutnings en RSK um innheimtu hjá framleiðendum. Skilagjald er nú 14 kr. á hverja umbúð.

Umsýsluþóknun

Nánar er í lögum 52/1989 ákvæði um greiðslu umsýsluþóknunar. Í lögunum segir: “Til viðbótar skilagjaldi skal með sama hætti leggja umsýsluþóknun á hverja umbúðaeiningu.”

Í lögum er gert ráð fyrir því að innflytjendur og framleiðendur ábyrgist rekstur móttökuaðila umbúða. Til að tryggja rekstrarhæfi er því heimilt að innheimta umsýsluþóknun sem er breytileg í upphæð eftir kostnaðarmyndun við vinnslu og móttöku mismunandi umbúða. Gjaldið er hæst á gleri þar sem kostnaðarsamt er að safna því. Gjaldið er einnig hærra í lituðu plasti, enda skemmir liturinn útflutningsverðmæti plasts. Efni sem ekki er úr PET efni, flokkast sem litað plast. Sumt af því er lítils virði og annað jafnvel urðað.

Nánar um umsýsluþóknun sjá reglugerð 824/2010.

Um undanþágur o.fl. vísast í lög 52/1989 og reglugerð 368/2000

Strikamerki

Endurvinnslan notar strikamerki drykkjarumbúða til að flokka efni í ál, plast og gler og einnig til að sjá samsetningu efnis og telja umbúðir. Slíkt er gert með talningarvélum (sjá efni um talningarvélar). Endurvinnslan leitar því eftir aðstoð framleiðenda og innflytjenda til að setja inn í gagnagrunna ný strikamerki og uppfæra og eyða gömlum. Þakkar Endurvinnslan fyrir góðar móttökur við þessa vinnu.